Lífvísir orða- og hugtakalisti


Til baka á gen.is

Forsíða Lífvísis

A - B - C - D - E - F - G - H - I - J - K - L - M - N - O - P - Q - R - S - T - U - V - W - X - Y - Z
Gríska stafrófið - Endingar í læknisfræðihugtökum - Endingar orða

Leita í: Öllu Sjúkdómum Orðum
Eitt af markmiðum kennslu- og upplýsingavefsins Lífvísis og kennsluvefsins Gen.is er að efla notkun íslenskra hugtaka og heita í sameindalífvísindum. Unnið hefur verið gott starf á því sviði af ýmsum aðilum m.a. með útgáfu orðasafna. Við gerð orða- og hugtakalistans hefur verið stuðst við nokkur þeirra og þessi helst: Ensk-íslenska orðaskrá úr erfðafræði eftir Guðmund Eggertsson (Líffræðiskor Háskóla Íslands 1997) Ensk-íslenska orðaskrá úr frumulíffræði og þroskunarfræði, sem tekin var saman af Guðmundi Eggertssyni og Sigurði S. Snorrasyni (Líffræðiskor Háskóla Íslands, 1994), Líforðasafn eftir Hálfdán Ómar Hálfdánarson og Þuríði Þorbjarnardóttur, (Offsetfjölritun 1997), Íorðapistla Læknablaðsins, eftir Jóhann Heiðar Jóhannsson (Læknablaðið, fylgirit 41/2001). Íorðasafn lækna sem orðalefnd Læknafélaganna stóð að (ritstjóri Magnús Snædal er einnig gagnlegur en inniheldur takmarkaðar upplýsingar um sameindalífvísindi og skyld svið. Við gerð orðalistans var einnig stuðst við Orðabanka íslenskrar málstöðvar en hann er fljótleg og góð aðferð til að finna íslenskar þýðingar á erlendum orðum. Nokkuð er um nýyrði sem verið er að prófa í málinu.
Ekki hefur verið gerð tilraun til að rekja uppruna orða, enda er hann oft óþekktur og notuð var almenn málnotkun eins og hún kemur aðstandendum vefsins fyrir sjónir. Við gerð listans hafa kostir vefumhverfis verið nýttir með því að nota myndir og setja tengla í aðra vefi og ítarumhverfi eftir því sem ástæða er til. Listinn verður í stöðugri þróun og er ekki villulaus og eru lesendur beðnir um að senda tölvupóst með tillögum og leiðréttingum, breytingum og nýjum orðum eftir atvikum.

 

Síðast uppfært: 26.12.2009 13:18:02