Parkinsons´s disease PDF Print E-mail

Parkinson´s heilkenni

Líkamleg einkenni: 
Höfuð beygist fram
Höfuðskjálfti 
Fölleitt andlit
Slef
Stirðleiki 
Frambeygður búkur 
Þyngdartap
Skortur á almennum liðleika 
Handskjálfti 
Viðbragðshæfni minnkar
Fætur eru dregnir 

Skjálfti er dæmigert fyrsta einkenni um sjúkdóminn. Hendur eða höfuð hristast á ósjálfráðan og reglubundinn hátt. Skjálftinn er áberandi þegar viðkomandi líkamshluti er í hvíld og dvínar þegar hann er í notkun. Ef sjúkdómurinn versnar getur viðkomandi orðið óskýr í tali og átt í erfiðleikum með t.d. að skrifa. Með árunum fær sjúklingurinn mjög einkennandi göngulag fyrir Parkinson sjúkdóminn og er eins og honum sé beinlínis hrint áfram. Viðkomandi finnur lítt eða ekki fyrir sársauka. Getan til að hreyfa sig minnkar stöðugt. Verkir geta komið fram þegar ákveðnir líkamshlutar stirðna. Með auknum vöðvastirðleika hallast líkaminn fram á við og handleggir verða bognir. Við það getur komið fram jafnvægisleysi. Á síðari stigum sjúkdómsins fer minnið minnkandi.

Til hjálpar 
Fræðsla til sjúkling og aðstandenda
Endurhæfing 
Heitt bað og nudd til vöðvaslökunar 
Aðstoð þvaglosun og hægðir
Hjálpartæki til sjálfshjálpar 
Viðhalda hreyfingu til að halda liðamótum hreyfanlegum og reyna að koma í veg fyrir að bein brotni.
Parry Romberg Syndrome