| Arfgengir sjúkdómar |
|
|
|
|
Arfgengir sjúkdómar eru fjölmargir. Þeir geta orsakast ýmist af galla í einu geni eða mörgum og samspili gena og umhverfis. Undir arfgenga sjúkdóma flokkast sum krabbamein, vöðvarýrnunarsjúkdómar, efnaskiptasjúkdómar og heilkenni. Einkenni arfgengra sjúkdóma geta verið lítil eða mikil eftir atvikum og stundum er það svo að erfðasjúkdómar verða alvarlegri hjá afkvæmum en forfeðrum. Erfðir sjúkdóma og heilkenna eru á ýmsa vegu; ríkjandi, víkjandi, kynbundnar og svo framvegis. Um það og margt fleira má lesa meira í erfðafræðihluta vefsins.
|


