Erfðaráðgjöf á meðgöngu PDF Print E-mail
Erfðaráðgjöf á meðgöngu eða vegna ófædds barns er boðin þegar það á við. Ástæður fyrir því að beðið er um erfðaráðgjöf á meðgöngu geta verið margvíslegar en hér að neðan eru nokkrar þeirra tilgreindar.

Arfgengur sjúkdómur hefur greinst hjá nánum ættingja
Þekktur erfðasjúkdómur er í ætt
Fósturskimun gefur vísbendingar um fósturgalla
Barn með alvarlegan fæðingargalla hefur fæðst í fjölskyldunni
Verðandi móðir hefur misst fóstur þrisvar sinnum eða oftar
Foreldrar hafa eignast andvana barn
Náinn skyldleiki er á milli foreldra
Verðandi foreldrar geta sjálfir óskað eftir erfðaráðgjöf eða fengið tilvísun frá lækni eða ljósmóður.