Krabbameinserfðaráðgjöf PDF Print E-mail
Erfðaráðgjöf vegna krabbameina er ferli sem falist getur í nokkrum samtölum og rannsóknum. 
Ástæður fyrir erfðarágjöf vegna krabbameina geta verið t.d.:

  • Sterk ættarsaga
  • Æxli hafa greinst í pöruðum líffærum (báðum brjóstum t.d.)
  • Tvö eða fleiri (sjaldgæf) æxli greinast í sama einstaklingi eða nánum ættingjum
  • Ráðþegi (sá sem kemur í viðtal) hefur áhyggjur vegna fjöskyldulægs krabbameins
  • Æxli greind hjá ungum einstaklingum, yngri en meðalaldur fyrir viðkomandi krabbamein
  • Samskonar eða skyld æxli hjá mörgum í sömu fjölskyldu
  • Krabbamein sem greinast vísa í ákveðin heilkenni
  • Læknir telur fjölskyldusögu ráðþega gefa tilefni til þess að vísa í erfðaráðgjöf