|
|
|
|
Vefurinn Gen.is er upplýsingavefur þar sem ensk orð og hugtök varðandi erfðafræði og arfgenga sjúkdóma eru þýdd á íslensku. Eigandi og árbyrgðarmaður eru Vigdís Stefánsdóttir erfðaráðgjafi. Athuga ber að þó svo upplýsingar á vefnum séu aðeins hafðar eftir áreiðanlegum heimildum, er honum ekki ætlað að koma í stað upplýsinga frá viðeigandi heilbrigðisstarfsfólki. Stærsti hluti vefsins er orðalisti þar sem erlend orð og hugtök í erfðafræði eru skýrð á íslensku en eiitt af markmiðum Gen.is er að efla notkun íslenskra hugtaka og heita í erfðafræði. Unnið hefur verið gott starf á því sviði af ýmsum aðilum m.a. með útgáfu orðasafna. Við gerð orða- og hugtakalistans hefur verið stuðst við nokkur þeirra og þessi helst: Ensk-íslenska orðaskrá úr erfðafræði eftir Guðmund Eggertsson (Líffræðiskor Háskóla Íslands 1997) Ensk-íslenska orðaskrá úr frumulíffræði og þroskunarfræði, sem tekin var saman af Guðmundi Eggertssyni og Sigurði S. Snorrasyni (Líffræðiskor Háskóla Íslands, 1994), Líforðasafn eftir Hálfdán Ómar Hálfdánarson og Þuríði Þorbjarnardóttur, (Offsetfjölritun 1997), Íorðapistla Læknablaðsins, eftir Jóhann Heiðar Jóhannsson (Læknablaðið, fylgirit 41/2001). Íorðasafn lækna sem orðalefnd Læknafélaganna stóð að (ritstjóri Magnús Snædal er einnig gagnlegur en inniheldur takmarkaðar upplýsingar um sameindalífvísindi og skyld svið. Við gerð orðalistans var einnig stuðst við Orðabanka íslenskrar málstöðvar en hann er fljótleg og góð aðferð til að finna íslenskar þýðingar á erlendum orðum. Nokkuð er um nýyrði sem verið er að prófa í málinu.
Síðast en ekki síst er grunnfræðsla um erfðafræði og er henni skipt upp í flokkana I, II og III eftir þyngd. Þær upplýsingar sem hér birtast eru ýmist unnar af höfundi eða fengnar frá áreiðanlegum heimildum. Allt þýtt og aðkomið efni er lesið yfir af læknum og erfðaráðgafa. Umsjónarmaður á engra fjárhagslegra hagsmuna að gæta. Vodafone eru færðar þakkir fyrir að hýsa vefinn án endurgjalds.
|


