Tourette heilkenni stafar af boðefnamisflæði í miðtaugakerfi heilans. (Uppl. fegnar af heimasíðu Tourette samtakanna). Sýnileg einkenni eru ýmiskonar ósjálfráðar hreyfingar og ósjálfráð hljóð, þ.e.a.s. margskonar "kækir". Um er að ræða fastmótaðar, tilgangslausar og skyndilegar hreyfingar og hljóð. Fyrstu einkenni eru yfirleitt kippir í andliti þ.e.a.s. ákaft augndepl, grettur og höfuðrykkir. Einkennin færast gjarnan niður í hálsinn, axlirnar og búkinn og kippir í höndum, eða fótum verða dæmigerðir. Hljóðkækir koma nokkru síðar. Í byrjun eru hljóðin oft "eðlileg", nefsog og ræskingar en þróast síðan út í annarskonar hljóð og upphrópanir.
Það er einkennandi að TS einkennin leysa hvert annað af hólmi og styrkleiki þeirra gengur í bylgjum. TS-einstaklingur getur lært að halda aftur af þeim tímabundið, en þá koma þau sterkar fram nokkru síðar. Með öðrum orðum, einstaklingurinn þarf að "tappa af". Kippirnir eru yfirleitt kröftugri innan veggja heimilisins en í skólanum. Einkennin versna við allt álag, hvort sem álagið er neikvætt eða jákvætt.
|