Vefurinn gen.is hóf göngu sína veturinn 2002. Þá hafði ég
frá
því sumarið áður verið að safna
að mér upplýsingum um erfðatengda
sjúkdóma og setja á heimasíðu
mína, www.islandia.is/viggast.
Mér fannst ekki fara nógu vel um þessar
upplýsingar þar og
ákvað að festa kaup á léni.
Mér til mikillar undrunar var
laust lénið gen.is en á því hafði ég
ekki átt von.
En forsagan er auðvitað miklu lengri. það er ekki hefðbundið
að blaðamaður með enga menntun í raunvísindum taki sig til
og læri vefgerð í þeim tilgangi að kenna erfðafræði eða fræða
fólk um sjaldgæfa erfðasjúkdóma, en ég geng yfirleitt ekki
troðnar slóðir og sá enga ástæðu til þess hér heldur. Áhugi
minn á erfðafræði og sjaldgæfum erfðasjúkdómum er í beinu
framhaldi af áhuga mínum á læknisfræði, en sá áhugi hefur
lengi verið fyrir hendi, eða allt frá því ég var barn. Það
dugði þó ekki til að ég færi í nám í læknisfræði, þó svo
mig langaði til þess, lífið tók einfaldlega aðra stefnu.
Og þar sem vegir forsjónarinnar eru órannsakanlegir, hefur
líf mitt aftur breytt um stefnu og nú er ég á leið í nám
sem sameinar allt það sem ég hef áhuga á. Læknisfræði, erfðafræði,
blaðamennsku og kennslu. Eg ætla nefnilega til Wales í haust
ef allt gengur eins og það á að gera og fara þar í mastersnám
í erfðaráðgjöf. Síðustu tvö árin hef ég verið að undirbúa
þetta nám með því að fara vítt og breitt um háskólann og
sækja námskeið í fögum sem ég hef talið koma mér að gagni.
Með náminu hef ég verið svo heppin að fá að vinna við vefgerð
í Læknagarði og hef notað tækifærið til að læra meira og
meira og kynnast fólki sem ég kem til með að starfa með að
námi loknu.
Í líffræðinámi í Ármúlaskóla hitti ég fyrir frjóa og áhugasama
konu, Sigurlaugu Kristmannsdóttur. Hún hefur gert nokkra
vefi í kennslunni og við ákváðum í vetur að slá saman þekkingu
okkar og áhuga á að fræða aðra og gera gen.is að því sem
ég ætlaði í upphafi, alhliða kennsluvef í erfðafræði. Vef
sem kennarar gætu notað í kennslu, allt frá upphafi og upp
að háskólastigi og í framhaldi af því kæmi vefurinn Lífvísir
(www.lifvisir.hi.is) sem ég hef unnið í fyrir lífefna-
og sameindalíffræðistofu Háskóla Íslands, en hann er kennslu-
og upplýsingavefur í lífvísindum.
Það hafa fleiri lagt hönd á plóg. Sigfús Kristmannsson forritari
hefur sýnt afburða þolinmæði og á heiðurinn af gagnagrunnsforritun
á síðunni. Þegar hann hefur kennt okkur nóg, getum við sett
allan vefinn í gagnagrunn en hann á þakkir skildar fyrir
alla sína aðstoð.
Katrín Björgvinsdóttir teiknaði myndir í erfðafræði I og
hefur með því gert þann hluta vefsins skemmtilegan fyrir
litlu krakkana.
Ósk okkar Sigurlaugar er sú að sem flestir geti notað sér
þennan vef, hvort sem um er að ræða nemendur, kennara eða
almenning og við þiggjum allar ábendingar um efni og það
sem betur má fara. Póstfangið er gen@gen.is.
Vigdis Stefánsdóttir
|